MENU
    mm
mm

Útskorin straumerki í eigin hönnun

Hannaðu þitt eigið útskorna straumerki og fáðu faglegt útlit á fatnaðinn þinn. Fullkomið fyrir lógó fyrirtækja, yfirlýsingar og skreytingar, í mjúkum gæðum án ofnæmisframkallandi efna og PVC. Þolir þvott við 60 gráður.
Pantaðu á netinu
Einfalt og þægilegt
Þolir þvottavél
allt að 60°C.
Afhent hjá þér
15. - 18. september
Ókeypis sending
yfir 3500 kr.*
100%
ánægjutrygging
Verðtrygging
við jöfnum verðið
Þarftu aðstoð?
Við erum tilbúin að aðstoða þig í síma 4160125
eða með tölvupósti á info@labelyourself.is.
  Hefja spjall

Hannaðu þin eigin straumerki hér

Útskorin straumerki er hægt að nota á margan hátt, og þú getur pantað þau í þeirri stærð sem hentar. Útskorin straumerki er auðvelt að setja á vinnuföt, eða gera (fyndna) boli með yfirlýsingum eða með eigin vörumerki og lógó.

Útskorin straumerki eru skorin út eftir kanti vörumerkisins eða hönnunarinnar sem þú setur inn, svo það fær sömu lögun.

Fáðu glæsilegt og faglegt útlit, og settu mynd eða lógó á vinnufötin eða bolina. Þú getur einnig skoðað allt úrvalið okkar af straumerkjum. Við mælum með straumerki með texta í stærðinni 30x13 mm á barnaföt. Gerðu boli fyrir steggjunina, gæsunina, afmælið, árshátíðina eða ættarmótið.

Útskorin straumerki í þinni eigin hönnun


  • Veldu fjölda
  • Veldu Small, Medium eða Large (hversu nálægt hönnunina viltu að merkin séu skorin)
  • Settu inn stærð á straumerkinu þinu (frá 6x6 mm til 210x210 mm.)
  • Settu inn eigin mynd / lógó / vörumerki eða veldu eina af standard hönnununum okkar.

Staðreyndir
  • Þú getur hannað straumerkin frá 6x6 mm og til 210x210 mm.
  • Þegar valið er á milli small, medium og large velurðu hvort það á að vera þunnur eða breiður kantur í kringum myndina sem þú setur inn.
  • Notendavæn og mjúk gæði, sem ekki pirra húðina.
  • Án ofnæmisframkallandi efna og PVC.
  • Leiðbeiningar fylgja með.
  • Straumerkin lita ekki og smita ekki af í fatnaðinn.
  • Ef þig vantar venjuleg straumerki sem ekki eru útskorin, geturðu notað venjulegu straumerkin okkar. Þú finnur þau hér.
  • Þú getur auðvitað líka notað straumerkin sem nafnamerki og setja í fötin, svo þau týnist ekki.
  • Útskornu straumerkin eru flott lausn ef þú vilt skreyta fatnaðinn.
  • Þú getur hannað straumerkin í lit og í svarthvítu.
  • Straumerkin þola þvott á 60 gráðum, en mundu að athuga hvort fötin þoli það sama.
Algengar spurningar

Hvaða efni henta fyrir útskorin straumerki?

Útskorin straumerki henta best á efni eins og bómull og pólýester. Þau henta ekki á mjög slétt eða vatnsfráhrindandi efni eins og regnföt, leður, PU-leður eða sérstaklega teygjanleg efni.

Þola útskorin straumerki þvott í þvottavél?

Já, straumerkin þola þvott við allt að 60 gráður. Mundu að ganga úr skugga um að fatnaðurinn sjálfur þoli sama þvottahita.

Í hvaða stærðum er hægt að panta útskorin straumerki?

Þú getur hannað straumerkin í stærðum frá 6x6 mm upp í 210x210 mm.

Hvað þýðir valið á milli Small, Medium og Large?

Valið ákvarðar hversu nálægt hönnuninni merkið er skorið út og hvort það sé þunnur eða breiður kantur í kringum myndina eða lógóið.

Eru straumerkin örugg fyrir viðkvæma húð?

Já, straumerkin eru unnin úr mjúkum gæðaefnum sem pirra ekki húðina og eru alveg án PVC og ofnæmisvaldandi efna.